Endurgreiðslustefna
Skipti og endurgreiðsla
Areia býður upp á 14 daga endurgreiðslu- eða skiptistefnu, sem þýðir að þú hefur 14 daga frá því að þú móttekur vöruna til að óska eftir endurgreiðslu eða skiptum. Eftir að þú sendir beiðnina hefur þú 14 daga til að senda vörurnar til baka.
Tekið er við tilkynningum um vöruskil og vöruskipti innan 14 daga frá kaupum í netverslun okkar, í samræmi við ákvæði laga nr. 16/2016, um neytendasamninga, gr.16-24. Eftir að viðskiptavinur hefur tilkynnt Areia um skil eða skipti hefur hann 14 daga til að senda vöruna til baka. Undantekningar frá þessari reglu má finna í kafla VI. Neytandi kann að bera ábyrgð á rýrnun á verðgildi vöru sem komu til vegna meðferðar hans á vörunni hafi hann gengið lengra en nauðsynlegt þykir til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni vörunnar sbr. 4. mgr. 22. gr. laganna. Pakkningarnar (askja og poki) teljast órjúfanlegur hluti vörunnar og hluti af verðmæti- og verðgildi hennar og skortur á að þær fylgi geti þannig leitt til þess að neytandi kunni að bera ábyrgð á rýrnun á verðgildi vörunnar séu þær ekki meðfylgjandi.
Til að hefja skil skal hafa samband við okkur hjá info@areiajewellery.com. Hægt er að nýta eyðublað Neytendastofu við uppsögn á samningi: https://neytendastofa.is/library/Files/Neytendarettarsvid/ey%c3%b0ubla%c3%b0_.docx
Ef skilin eru samþykkt sendum við endursendingarmiða fyrir skilunum, sem og leiðbeiningar um hvernig og hvert á að senda pakkann. Vörur sem sendar eru til baka til okkar án þess að fyrst sé óskað eftir skilum verða ekki samþykktar. Endurgreiðsla verður innt af hendi innan 14 daga frá því að við móttökum vöruna.
Þú getur alltaf haft samband við okkur ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi skil á vörunni á info@areiajewellery.com.
Tjón og vandamál
Vinsamlegast skoðið pöntunina við móttöku og hafið samband við okkur tafarlaust ef varan er gölluð, skemmd eða ef þú færð ranga vöru, svo að við getum metið vandamálið og lagað það.
Endurgreiðslur
Við sendum staðfestingarpóst þegar vara er móttekin og hvort endurgreiðslan var samþykkt eður ei. Sé endurgreiðsla samþykkt færðu sjálfkrafa endurgreiðslu með sömu greiðsluaðferð og notuð var við kaupin innan 14 daga. Vinsamlegast athugið að það getur tekið smá tíma fyrir bankann þinn eða kreditkortafyrirtækið að vinna úr og senda endurgreiðsluna.
Ef meira en 30 virkir dagar eru liðnir frá því að skil voru samþykkt, vinsamlegast hafið samband við okkur á info@areiajewellery.com.
Hvernig á að hefja skil eða afpöntun Sendu okkur tölvupóst eða skráðu þig inn á reikninginn þinn á https://account.areiajewellery.com og farðu í pantanir þínar til að senda inn beiðni. Þú getur nýtt eyðublað Neytendastofu við uppsögn á samningi: https://neytendastofa.is/library/Files/Neytendarettarsvid/ey%c3%b0ubla%c3%b0_.docx
Sendingarkostnaður til baka Sendingarkostnaður til baka er á ábyrgð viðskiptavinarins.
Undanþágur Réttur til að hætta við á ekki við um sérsmíðaða eða persónulega skartgripi eða aðrar vörur sem eru undanþegnar samkvæmt gildandi lögum.