Þjónustuskilmálar

1. Inngangur
Velkomin til Areia Jewellery. Með því að heimsækja eða versla á vefsíðunni okkar, Areiajewellery.com, samþykkir þú að hlíta þessum skilmálum. Ef þú fellst ekki á einhvern hluta þessara skilmála skaltu ekki nota netverslunina okkar. Starfsemi okkar lýtur íslenskum lögum og reglum Neytendastofu.

2. Almennir skilmálar
Við áskiljum okkur rétt til að neita hverjum sem er um þjónustu, af hvaða ástæðu sem er og hvenær sem er. Vörur sem keyptar eru af öðrum söluaðilum falla ekki undir ábyrgð Areia Jewellery.

3. Vörur og þjónusta
Allar vörur eða þjónusta sem í boði eru á vefsíðunni okkar eru háðar framboði. Við höfum lagt okkur fram um að sýna liti og myndir af vörum okkar eins nákvæmlega og hægt er, en við getum ekki ábyrgst að litir birtist nákvæmlega eins á skjánum þínum.
Við áskiljum okkur rétt til að takmarka sölu á vörum okkar eða þjónustu til tiltekinna einstaklinga, landsvæða eða lögsagnarumdæma. Verð getur breyst án fyrirvara.

4. Pantanir og greiðsla
Með því að leggja inn pöntun samþykkir þú að veita réttar og fullnægjandi upplýsingar um kaup og reikning. Við tökum við greiðslum með debet- og kreditkortum og vinnum úr öllum færslum í íslenskum krónum (ISK). Allar pantanir eru staðfestar með tölvupósti. Vinsamlegast athugaðu ruslpóstmöppuna ef staðfestingarpóstur berst ekki innan sólarhrings. Allar breytingar á pöntun verða einnig staðfestar við viðskiptavininn með tölvupósti.
Areia Jewellery áskilur sér rétt til að hafna eða hætta við pöntun að eigin geðþótta. Ef breytingar verða á pöntun þinni munum við láta þig vita með þeim samskiptaupplýsingum sem þú hefur gefið upp. Við munum alltaf gera okkar besta til að verða við beiðnum um hraðari afgreiðslu.

5. Sending og afhending
Við stefnum að því að afgreiða og senda pantanir innan 48 klukkustunda. Sendingar innanlands eru á vegum Póstsins og áætlaður afhendingartími er 2–5 virkir dagar. Sendingar til útlanda eru á vegum DHL Express. Afhendingartími getur verið breytilegur eftir staðsetningu og sendingarleið.
Vinsamlegast athugið að sendingarkostnaður og afhendingartími geta breyst. Við berum ekki ábyrgð á töfum sem stafa af flutningsaðilum þriðja aðila.

6. Vöruskil og endurgreiðslur
Tekið er við tilkynningum um vöruskil og vöruskipti innan 14 daga frá kaupum í netverslun okkar, í samræmi við ákvæði laga nr. 16/2016, um neytendasamninga, gr.16-24. Eftir að viðskiptavinur hefur tilkynnt Areia um skil eða skipti hefur hann 14 daga til að senda vöruna til baka. Undantekningar frá þessari reglu má finna í kafla VI. Skila þarf skartgripum í upprunalegu ástandi sem og upprunalegar umbúðir (askja og taupoki) verða að vera óskemmdar. Ef hluti umbúðanna vantar eða eru skemmd, gæti það leitt til lækkunar á endurgreiðslufjárhæð.
Fulltrúi fyrirtækisins fer yfir allar beiðnir um endurgreiðslu og vöruskipti. Endurgreiðsla miðast við upprunalegt verð vörunnar.
Ef viðskiptavinur fær afhenta skemmda vöru mun Areia Jewellery annaðhvort gera við hana, skipta henni út eða endurgreiða hana. Skemmdu vöruna þarf að senda til Areia, þar sem fulltrúi okkar tekur við henni og metur skemmdirnar. Ef varan er viðurkennd sem skemmd mun Areia senda nýja eða viðgerða vöru til viðskiptavinarins að kostnaðarlausu.
Endurgreiðsla gildir ekki um útsöluvörur. Aðeins er hægt að skipta útsöluvörum út fyrir aðrar útsöluvörur. 

7. Persónuverndarstefna
Meðferð persónuupplýsinga sem þú veitir í gegnum verslunina lýtur persónuverndarstefnu okkar.

8. Takmörkun ábyrgðar
Að því marki sem lög leyfa ber Areia Jewellery enga ábyrgð á tjóni, tapi eða kostnaði sem hlýst af eða tengist notkun þinni á vefsíðu okkar eða vörum.

9. Skaðleysi
Þú samþykkir að skaðleysa og verja Areia Jewellery, ásamt tengdum félögum, samstarfsaðilum og starfsmönnum, gagnvart kröfum þriðja aðila sem rekja má til brots þíns á þessum skilmálum.

10. Breytingar á skilmálum
Við áskiljum okkur rétt til að uppfæra, breyta eða skipta út hlutum þessara skilmála með því að birta breytingar á vefsíðu okkar. Það er á þína ábyrgð að kynna þér reglulega hvort breytingar hafi verið gerðar á þessari síðu.

11. Samskiptaupplýsingar
Ef þú hefur spurningar varðandi þessa skilmála skaltu senda okkur póst á info@areiajewellery.com

12.Gölluð vara
Ef vara reynist gölluð á viðskiptavinur rétt á úrbótum samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup.Kvörtunarfrestur vegna galla er almennt tvö ár frá kaupdegi, en getur verið allt að fimm ár ef varan er ætluð til lengri endingar. sbr. 2. mgr. 27 gr. laga um neytendakaup.

Ábyrgðin nær eingöngu til framleiðslu- eða efnisgalla sem koma fram á ábyrgðartíma vörunnar. Ábyrgðin tekur ekki til eðlilegs slits eða skemmda sem verða vegna daglegrar notkunar, svo sem rispa, högga eða annarra óhappa.